„Það gjöri eg Erlendur Gíslason góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …“
„… er liðið var frá hingaðburð vor herra Jesú Krists þúsund fimmhundruð nítján ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 547, bl. 719. Reykjavík 1906-1913
Erlingur Gíslason lýsir því að hann hafi tekið eiðfestan vitnisburð af Jóni Brandssyni um það að skipsherra Gerst Melen (Maulen) hafi fengið Eyjólfi Gíslasyni til frjáls forræðis og æfinlegrar eignar „það sama kaupskip og skipabrot öll er komið var á hans reka“ (DI VIII:719). Greipur Jónsson prestur og Hallur Stullason eru vottar að bréfinu og settu sín innsigli fyrir ásamt Erlendi.
Óþekktur skrifari.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).
Eitt af þremur innsiglum er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Haga á Barðarströnd 1519, ekki er tiltekið á hvaða degi.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.