Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,13

Próventubréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Próventubréf.
Upphaf

Það gjörum við Þorsteinn Finnbogason og Þorkell Snjólfsson góðum mönnum viturligt með þessu okkru opnu béfi …

Niðurlag

… fyrir þetta próventubréf skrifað í sama stað sem fyrr segir árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð og seytján ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 479, bl. 628-629. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Þorvarður Guðmundsson gefur, með leyfi bræðra sinna, síra Þórðar og Ívars Guðmundssona, ásamt konu sinni, Guðlaugu Tómasdóttur, Sigurði Finnbogasyni og Margrétu Þorvarðsdóttur konu hans jörðina Egilsstaði í Fljótsdalshéraði í próventu sína (DI VIII:628).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (110 mm x 195 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 80 mm x 170 mm
  • Línufjöldi er 13.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi (fljótaskrift): „Profentu giof Þoruards Gudmundssonar. hann gefr þosteini finbogasini med med sier til fosturs Eigelstadi j Flíotzdals heradi“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Bæði innsiglin eru varðveitt og í góðu ásigkomulagi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Reykjahlíð við Mývatn 12. júní 1517.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,13
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn