„Það meðkennist eg Vigfús Erlendsson lögmann yfir allt Ísland að eg hefi …“
„… þetta bréf skrifað á Hlíðarenda feria sexta quatuor temporum, anno domini þúsund fimmhundruð og sautján.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 487, bl. 638. Reykjavík 1906-1913
Vigfús Erlendsson hafði umboð herra Andres Mus biskups í Ósló vegna skuldar Bjarnar Þorleifssonar en Ögmundur ábóti í Viðey hefur ábyrgst greiðslu á annarri lest skreiðar fyrir Björn næstu tvö ár og kvittar Vigfús Björn um skuldina (DI VIII:638).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Kvittvnar bref“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Tveir innsiglisþvengir hanga við bréfið en ekkert innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Hlíðarenda 19. september 1517.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.