Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,19

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjöri ek Jón Kolbeinsson góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… fimmtudaginn næsta eftir Johannis messu baptista, árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð og fjórtán ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 383, bl. 495-496. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður að Halldór Sumarliðason hafi gefið Sumarliða syni sínum jörðina Garð hinn syðra, er liggur í Dýrafirði (DI VIII:495).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (75 mm x 185 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 50 mm x 150 mm
  • Línufjöldi er 10.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „vítníss burdar bréf jóns kolbeíns sonar um gard j dyra firde“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Innsigli Jóns er varðveitt með bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Möðruvöllum í Eyjafirði eftir 25. júní 1514.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 10. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn