Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,17

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum við Jón prestur Eireksson og Sæmundur Eireksson góðum mönnum kunnigt …

Niðurlag

… skrifað í Skálholti post translacione thorlaci episcopi confessoris, anno domini þúsund fimmhundruð og fjórtán.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 385, bl. 496-497. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður tveggja manna að þeir hafi afhent þá sömu peninga í Björgvin í Noregi, sem Vigfús bóndi Erlendsson sendi fram unga herra Kristjáni konungi sem voru 20 hálfstykki klæðis og 80 Rínargyllini (DI VIII:496).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (85 mm x 145 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 70 mm x 130 mm
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „vitnis burdur um gialld fusa laugmanns“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Innsiglisþvengirnir eru fastir við bréfið en innsiglin eru ekki varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Skálholti eftir 20. júlí 1514.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 10. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn