„Það gjörum vér Gísli prestur Halldórsson, Guðmundur Andrésson, Ívar Narfason, Jón Gíslason, Þorsteinn Ketilsson og Jón Þórðarson leikmenn …“
„… í Flatey á Breiðafirði næstan daginn eftir Bótólfsmessu á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 382, bl. 494-495. Reykjavík 1906-1913
Björn Þorleifsson gefur og uppleggur, í umboði Páls Jónssonar, Pétri Jónssyni og Jóni syni hans, ef Páll vill það samþykkja, alla þá peninga og arf sem Pétur tók þar þá við og hafði áður upp borið, en enga aðra, eftir síra Jón Jónsson föður sinn, en Birni þótti fallið hafa Páli Jónssyni til erfða eftir greindan síra Jón Jónsson bróður sinn, og geldur Pétri þrjá tigi hundraða í aflausn (DI VIII:494).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „bref þeirra pals jónssonar og brodur hans sera jonssonar vm arflausn“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).
Allir sex innsiglisþvengir hanga við bréfið og tvö innsigli eru varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Flatey 18. júní 1514.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.