Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,8

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Ólafur Eireksson, Einar Þorleifsson, Jón Björnsson, Þorsteinn Þorkelsson, Jón Steinsson, Þórarinn Arason, Jón Sighvatsson, Jón krabbi Pétursson, Jón Guðmundsson, Þorsteinn Einarsson, Páll Arason og Jón Þórðarson …

Niðurlag

… þetta dómsbréf hvert er skrifað var í Vatnsfirði í Ísafirði in festo sancti urbani episcopi á sama ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 374, bl. 484-486. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Tylftardómur útnefndur af Landbjarti Bárðarsyni, sem þá hafði sýslu fyrir norðan Bjarggnúp í umboði Björns Guðnasonar, um ágreining um Almenning og eignareka þar í Skáladal, en hval hafði rekið þar fyrir skömmu (DI VIII:484).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (180 mm x 350 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 155 mm x 325 mm
  • Línufjöldi er 26.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „XII manna dómur Vm Almenninga A Grænu Hlijd og fyrir rit Dæmdur J Skáladal J Adalvijk“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).

Innsigli

Allir tólf innsiglisþvengirnir eru fastir við bréfið og þrjú innsigli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Dómurinn var útnefndur í Skáladal í Aðalvík 5. maí 1514 og bréfið var skrifað í Vatnsfirði sama ár.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 6. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,8
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Dómar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn