„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Ólafur Eireksson, Einar Þorleifsson, Jón Björnsson, Þorsteinn Þorkelsson, Jón Steinsson, Þórarinn Arason, Jón Sighvatsson, Jón krabbi Pétursson, Jón Guðmundsson, Þorsteinn Einarsson, Páll Arason og Jón Þórðarson …“
„… þetta dómsbréf hvert er skrifað var í Vatnsfirði í Ísafirði in festo sancti urbani episcopi á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 374, bl. 484-486. Reykjavík 1906-1913
Tylftardómur útnefndur af Landbjarti Bárðarsyni, sem þá hafði sýslu fyrir norðan Bjarggnúp í umboði Björns Guðnasonar, um ágreining um Almenning og eignareka þar í Skáladal, en hval hafði rekið þar fyrir skömmu (DI VIII:484).
Skrifari er óþekktur.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „XII manna dómur Vm Almenninga A Grænu Hlijd og fyrir rit Dæmdur J Skáladal J Adalvijk“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).
Allir tólf innsiglisþvengirnir eru fastir við bréfið og þrjú innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Dómurinn var útnefndur í Skáladal í Aðalvík 5. maí 1514 og bréfið var skrifað í Vatnsfirði sama ár.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.