Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,4

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Öllum góðum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Arnór Finnsson, Vigfús Þórðarson, Sigurður Daðason, Guðmundur Finsson lögréttumenn, Ormur Illugason, Stefán Þórarinsson, Pétur Jónsson, Hálfdan Guðmundsson, Egill Jónsson, Hallgrímur Skúlason, Jón Jónsson og Jón Bessason …

Niðurlag

… hvert skrifað var í Snóksdal í Miðdölum á sama ári, degi síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 347, bl. 426-429. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Tylftardómur útnefndur af Jóni Sigmundssyni lögmanni norðan og vestan á Íslandi um erfðatilkall Björns Guðnasonar til garðsins Auðkúlu í Húnavatnsþingi og þeirra eigna, sem þar með fylgdu, en þær eignir hafði Ólafur Philipusson tekið upp og er sá gjörningur dæmdur ónýtur og ólöglegur (DI VIII:426).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (110 mm x 395 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 95 mm x 365 mm
  • Línufjöldi er 24.

Skrifarar og skrift

Skrifari er Björn Guðnason.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Domur um kulu uegna biarnar og undanfæri olafs philipussonar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (420 mm x 520 mm x 9 mm).

Innsigli

Af þrettán innsiglum eru sex varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Dómurinn var gerður í Leiðarhólmi 10. maí 1513 en bréfið var skrifað í Snóksdal degi síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,4
  • Efnisorð
  • Dómar
    Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn