Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,22

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það geri eg Þórður Ísleifsson góðum mönnum viturligt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… á föstudaginn næsta fyrir catídra Petri apostuli, þá liðið var frá guðs burði þúsund fimmhundruð og tólf ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 305, bl. 368. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður um kaup þeirra Sæmundar Jónssonar og Sigmundar Guðmundssonar um jarðirnar Brú og Sólheima í Mýrdal (DI VIII:368).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (75 mm x 190 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 43 mm x 143 mm
  • Línufjöldi er 8.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Witnisburdur Wm brú og sólheima kaup“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Innsiglið er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Fagraskógi 20. febrúar 1512.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 6. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn