Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,21

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjöri eg Eirekur Bjarnason góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… fimmtudaginn næsta fyrir Símonsmessu, árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð og tólf ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 303, bl. 366-367. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður um peningaskipti Magnúsar Þormóðssonar millum barna sinna og Katerínar konu sinnar (DI VIII:366).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (130 mm x 175 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 105 mm x 160 mm
  • Línufjöldi er 18.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Skiptabref eptir Magnus þormodsson“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Ekkert innsigli er á bréfinu en innsiglisþvengurinn hangir enn fastur við.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Stað á Reykjanesi 12. febrúar 1512.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 2. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn