Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XL,5

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Ólafur Guðmundsson, Þorleifur Önólfsson, Eyvindur Guðmundsson, lögréttumenn, Jón Eireksson, Jón Sighvatsson, Jón Björnsson góðum mönnum …

Niðurlag

… hvert skrifað var í Ögri í Ísafirði festum Andre apostole, anno domini þúsund fimmhundruð tíu.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 277, bl. 333-335. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður sex manna að Björn Guðnason hafi boðið sín bréf og skilríki undir dóm Finnboga lögmanns Jónssonar eða hans umboðsmanns á alþingi 30. júní 1509, og síðan undir dóm Vigfúsar hirðstjóra Erlendssonar, því að Finnbogi var þá ekki á þingi, en Vigfús hafði sagt þar nei til, en um haustið eftir hafi Jón lögmaður Sigmundsson riðið í Vestfjörðu og dæmt um þetta efni, og þann dóm hafi Björn birt á alþingi 1510 (DI VIII:333-334).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (100 mm x 195 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 75 mm x 180 mm
  • Línufjöldi er 21.

Skrifarar og skrift

Skrifari er Björn Guðnason.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „Wmm lagabod biarnar gudinasonar a alþingi“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).

Innsigli

Öll sex innsigli bréfsins eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Brefið var skrifað í Ögri í Ísafirði 30. nóvember 1510.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 30. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn