Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XL,4

Vitnisburður um jarðakaup. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburður um jarðakaup.
Upphaf

Það gjörum vér Þorkell prestur Pálsson, Landbjartur Bárðarson, Jón Guðmundsson og Þórarinn Arason góðum mönnum …

Niðurlag

… þá liðið var frá guðs burði þúsund fimmhundruð og fjórtán ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 234, bl. 279-280. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Þorsteinn Þorleifsson selur, með samþykki Halldóru Hallsdóttur konu sinnar, Einari bróður sínum jörðina Tannanes í Önundarfirði fyrir lausafé (DI VIII:279).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (110 mm x 240 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 95 mm x 210 mm
  • Línufjöldi er 18.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „kaup Wmm tannanes“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (295 mm x 370 mm x 20 mm).

Innsigli

Þrjú af fjórum innsiglum fylgja bréfinu og einn innsiglisþvengur að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Vitnisburðurinn varð á Stað í Aðalvík 17. maí 1509 en bréfið var skrifað 6. apríl 1514 á Kirkjubóli.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 26. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn