Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,21

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjöri eg Jón prestur Halldórsson góðum mönnum viturligt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… skrifað var á Staðarhóli í Saurbæ. In festo sanctorum martírum felícis et audactí. Anno domini þúsund fimmhundruð átta.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 193, bl. 229-230. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður Jóns prests Halldórssonar um að hann hefði heyrt Odd heitinn Pétursson segjast hafa orðið vitni að handabandi Sveins biskups og Lopts Ormssonar um gjöf þess síðar nefnda á jörðinni Munaðarnesi á Ströndum til Staðarhólskirkju í Saurbæ (DI VIII:208).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (95-114 mm x 175 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 75 mm x 155 mm
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „Wm munadarnes“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Innsiglið fylgir bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað á Staðarhóli 30. ágúst 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 23. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn