„Það gjörum vér Ólafur Guðmundsson, Helgi Jónsson og Ari Sigmundsson góðum mönnum viturligt með þessu voru …“
„… á föstudaginn næsta fyrir dominica palmarum ári síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 135, bl. 155-156. Reykjavík 1906-1913
Vitnisburðarbréf um samtal þeirra Einars Oddssonar og Björns Guðnasonar bónda um grip á eignum Einars er hann bar á Björn, en Björn þóttist hafa heimildir Einars fyrir (DI VIII:155).
Skrifari óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).
Eitt innsigli af þremur er varðveitt, nokkuð skemmt, en allir innsiglisþvengirnir eru fastir við bréfið.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Vitnisburðurinn varð 16. júlí 1507 en bréfið var skrifað í Ögri í Ísafirði 14. apríl 1508.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.