„Jak Anders Hansson, Eric Arnulsson, Gunnar Ericsson, Anders Gudmundsson …“
„… datum Bergis anno domini md sexto infra octauam epifanie.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 80, bl. 85-86. Reykjavík 1906-1913
Sjö þjónar Hans biskups í Björgvin votta að Björn Þorleifsson hafi „þjónað í garði“ saman með sér sem „einn dándisveinn“ og má hann skírskota til þeirra um framferði sitt ef á þarf að halda (DI VIII:85).
Skrifari óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (293 mm x 370 mm x 20 mm).
Fjögur af sjö innsiglum eru varðveitt.
Bréfið var skrifað í Noregi.
Bréfið er skrifað í Björgvin 13. janúar 1506
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.