Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,30

Dómur vegna hvalreka í Skutulsfirði. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómur vegna hvalreka í Skutulsfirði.
Upphaf

Öllum mönnum þeim þetta bréf sjá eða heyra sendir Þorleifur Örnólfsson, Ketill Þorsteinsson, Jón Þorsteinsson, Þorgautur Ólafsson, Sigurður Brandsson og Jón Jónsson …

Niðurlag

… innsigli fyrir þetta dómsbréf hvert skrifað var í Ögri í Ísafirði þiðja dag páska ári eftir en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 701, bl. 763-765. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Dómur útnefndur af Birni Guðnasyni um áskilnað Guðna Jónssonar og Tómasar Jónssonar út af hval sem rak á Kirkjubóli í Skutulsfirði, þá er Tómas hafði jörðina á leigu, en Tómas hafði tekið hvalinn með sér (DI VII:763).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (135-152 mm x 335-340 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 80 mm x 325 mm.
  • Línufjöldi er 16.

Ástand
Ferningur neðan af vinstra horni bréfsins virðist hafa verið skorinn af.
Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „domsbref um hualinn þann tumas jonsson tok ad sier a kirkiuboli i skutulsfirdi“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (293 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Tvö innsigli af fjórum eru varðveitt og einn innsiglisþvengur að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í upphafi bréfsins er tekið fram að dómurinn hafi verið kveðinn á Mosvöllum í Önundarfirði 1505 en í niðurlagi að það hafi verið skrifað og vottað í Ögri í Ísafirði 14. apríl ári síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 11. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,30
  • Efnisorð
  • Dómar
    Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn