„Það gerum vér Jón Björnsson, Hallur Arnórsson, Eysteinn Einarsson og Jón Jónsson …“
„… fimmtudaginn næsta fyrir Jónsmessu Hólabiskups á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 634, bl. 681. Reykjavík 1903-1907
Jón Ásgrímsson selur Helga Ásgrímssyni jarðirnar Sirisstaði, Bitru og Haus í Kræklingahlíð fyrir hálfar jarðirnar Voga við Mývatn, Breiðamýri í Reykjadal og Bjarnastaði í Bárðardal (DI VII:681).
Skrifari er óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Fjórir innsiglisþvengir eru á bréfinu en ekkert innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Espihóli í Eyjafirði 18. apríl 1504.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.