Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,3

Dómur um ólöglega ásetu. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómur um ólöglega ásetu.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendum vér Björn Guðnason, Þorleifur Örnólfsson …

Niðurlag

… þetta dómsbréf er skrifað var í Kálfanesi í Steingrímsfirði á sama ári degi síðar enn fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 666, bl. 727-729. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Dómur útnefndur af Guðna Jónsssyni, konungs umboðsmanni milli Geirhólms og Hrútafjarðarár, um ákærur Jóns murta Einarssonar til Jóns Hallvarðssonar um ásetu hans og búnað að Kirkjubóli í Steingrímsfirði (DI VII:727). Í dómi sitja Björn Guðnason, Þorleifur Örnólfsson, Eyvindur Guðmundsson, Guðmundur Loftsson, Snorri Helgason og Þorbjörn Jónsson.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (119 mm x 295 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 90 mm x 253 mm.
  • Línufjöldi er 21.

Skrifarar og skrift

Skrifari er Björn Guðnason.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1vmeð annarri hendi: „domur um ologlega asetu jardar aff Gudna Jonssyni dæmdur“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.(295 mm x 370 mm x 20 mm).

Innsigli

Sex af sjö innsiglum eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Kálfanesi 26. september 1504.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 9. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,3
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Dómar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn