Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,14

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Öllum góðum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eða heyra senda Jón Sigmundsson …

Niðurlag

… er gjört var í Tungu í Víðidal föstudaginn næstan eftir calixtus messu árum eftir Guðs burð fimmtán hundruð og þrjú ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 614, bl. 649. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Dómur útnefndur af Finnboga lögmanni Jónssyni um afl og gildi útlúkningarbréfa Narfa Sigurðssonar og Sigurðar Narfasonar um Ásgeirsár, Lækjamót, og fjórar jarðir á Ströndum til Finnboga lögmanns og Teits Þorleifssonar (DI VII:649).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (105 mm x 126-135 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 105-110 mm x 165 mm.
  • Línufjöldi er 24.

Skrifarar og skrift

Skrifari er Jón Sigmundsson.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með yngri hendi: „domur vm teits peninga“ og ártalið „1503“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Ekkert innsigli er varðveitt en sex innsiglisþvengir eru enn á bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Víðidalstungu 20. október 1503.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 4. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í nýju möppunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,14
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn