„Þeim góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra senda Eiríkr Þorleifsson …“
„… innsigli með vorum innsiglum fyrir þetta bréf, gjört í sögðum stað, degi og ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 519, bl. 623-624. Kaupmannahöfn 1893
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 133-134. Bréf nr. 107. København 1963.
Jón Hákonarson selur séra Halldóri Loptssyni hálfa jörðina Grund í Eyjafirði með Holti fyrir tilteknar jarðir. Frumbréfið virðist vera með sömu hendi og Nr. 510 hér er framan (23. Okt. 1395) og mun það án efa vera hönd séra Halldórs Loptssonar, því enginn annar, af þeim sem nefndir eru í bréfunum, kemur við þau bæði (Íslenzkt fornbréfasafn III:623).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v er „grundar Bref gamallt“ skrifað með hendi frá ca. 1600. Með hendi frá ca. 1700 er skrifað „Kuittantia vm halfa grund Jonz Hakonssonar“ og undir því „NB“ og aftur með blýanti „✻ NB NB“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Fimm innsigli hafa verið fyrir bréfinu, en fjögur eru dottin frá. Bakhlið eins innsiglis er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Grund, Eyjafirði 2. febrúar 1398.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.