Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. IV,20

Falsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Falsbréf.
Upphaf

Það gjörum vér, Hjalti Lýtingsson, Jón Þorleifsson …

Niðurlag

… bréf er skrifað var í Hrauni í Dýrafirði sjálfa Símonsmessu þá liðið var frá guðs burð M CCC og níu tigir ára.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 375, bl. 447. Kaupmannahöfn 1896

Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 96. Bréf nr. 82. København 1963.

Athugasemd

Á meðfylgjandi athugasemd Árna Magnússonar segir að bréfið sé falsbréf ritað á uppskafning.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (150 mm x 250 mm
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 120 mm x 215-220 mm.
  • Línufjöldi er 20.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari. Falsarinn er sá sami og ritaði AM Dipl. Isl. VI.8.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á síðu 1v er ritað með hendi Eggerts Hannessonar: "breff vmm landmerki aa Mille gnu(p)s og aluidru og gerdhammra j dyrafirdi".

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).

Innsigli

Göt eru fyrir fjóra innsiglisþvengi og allir eru varðveittir. Fyrsta innsiglið vantar en hin eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Samkvæmt Stefáni Karlssyni (Islandske originaldiplomer bls. xxviii) er bréfið ritað á 16. öld en í texta þess er því haldið fram að það sé ritað 28. október 1390 í Dýrafirði.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. IV,20
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Falsbréf.

Lýsigögn