Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. I,10

Máldagi. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Máldagi.
Upphaf

Öllum góðum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendir bróðir Jón, með guðs miskunn, biskup í Skálaholti …

Niðurlag

… setjum vér vort innsigli fyrir þetta bréf er gert var í Alviðru, ári og degi fyrr sögðum

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnII. nr. 510, bls. 786-787. Kaupmannahöfn 1893

Islandske originaldiplomer indtil 1450. s. 21. Bréf nr. 19. Köbenhavn 1963.

Athugasemd

Bréf Jóns Sigurðarsonar Skálholtsbiskups með hverjum máldaga hann vígði kirkjuna að Alviðru í Dýrafirði 5. september 1344 (sbr. AM 479 fol.)).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ( mm x mm). Bakhlið bréfsins 1v er að mestu auð.
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 176-180 mm x 130-135 mm.
  • Línufjöldi er 10.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v er skrifað með hendi frá 16. öld (etv. hendi Eggerts Hannessonar lögmanns):"bref fyrer aluidru kirkiu".

Band

Umbúðir og askja frá 1996-1997 (209 mm x 172 mm x 10 mm).

Innsigli

Innsigli Jóns Sigurðarsonar Skálholtsbiskups er fyrir bréfinu. Innsiglistaumur er varðveittur en innsiglið sjálft er mjög illa farið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Alviðru í Dýrafirði 5. september 1344. Klausa á bakhlið bréfsins bendir til þess að Eggert Hannesson hafi haft það undir höndum á 16. öld. .

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • SS skráði samkvæmt reglum TEI P5 21. febrúar 2013 og síðar.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn á árunum 1996-1997.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. I,10
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Máldagi.

Lýsigögn