„Það gjörum vér Ari Sigurðsson, Jón Markússon, Ingimundur Ólafsson …“
„… mánudaginn næsta fyrir apostolorum Simonis et Jude á sama ári sem fyrr segir.“
Helgi Sigurðsson selur Brynjólfi Magnússyni jörðina Hallgilsstaði í Fnjóskadal fyrir 37 hundruð í lausafé, og tilgreinir landamerki. Bréfið er prentað eftir frumriti í Íslenzku fornbréfasafni 6, 503-504. Frumbréfið er í AM Dipl. Isl. Fasc. XXVII, 20.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Efst í hægra horni bl. 1r er skrifað ártalið 1483 með hendi skrifara og fyrir ofan textann á sama blaði er safnmark frumbréfsins með 20. aldar hendi.
Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.
Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.
Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, líklega á árunum 1702-1712.
Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftir sendar til Kaupmannahafnar árið 1720.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.