Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Apogr. 8

Kaup- og landamerkjabréf um Hallgilsstaði í Fnjóskadal ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-3v)
Kaup- og landamerkjabréf um Hallgilsstaði í Fnjóskadal
Upphaf

Það gjörum vér Ari Sigurðsson, Jón Markússon, Ingimundur Ólafsson …

Niðurlag

… mánudaginn næsta fyrir apostolorum Simonis et Jude á sama ári sem fyrr segir.

Athugasemd

Helgi Sigurðsson selur Brynjólfi Magnússyni jörðina Hallgilsstaði í Fnjóskadal fyrir 37 hundruð í lausafé, og tilgreinir landamerki.

Bréfið er prentað eftir frumriti í Íslenzku fornbréfasafni 6, 503-504.

Frumbréfið er í AM Dipl. Isl. Fasc. XXVII, 20.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír. Vatnsmerki ofarlega á bl. 2-3.
Blaðfjöldi
4 blöð (165 mm x 105 mm). Bl. 4 autt.
Kveraskipan
Tvö tvinn.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 95-100 mm x 60 mm.
  • Línufjöldi er 12.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Efst í hægra horni bl. 1r er skrifað ártalið 1483 með hendi skrifara og fyrir ofan textann á sama blaði er safnmark frumbréfsins með 20. aldar hendi.

Band

Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.

Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, líklega á árunum 1702-1712.

Ferill

Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftir sendar til Kaupmannahafnar árið 1720.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 7. apríl 2017.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn