Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Apogr. 6

Vitnisburðarbréf um sölu jarðarinnar Landamóta í Ljósavatnskirkjusókn í Kinn ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1v-2r)
Vitnisburðarbréf um sölu jarðarinnar Landamóta í Ljósavatnskirkjusókn í Kinn
Upphaf

Það gjörum vér Ólafur Benediktsson, Sveinn Ögmundsson, Þorkell Tumason, Magnús Gunnlaugsson góðum mönnum kunnugt …

Athugasemd

Sólveig Þorgrímsdóttir selur Birni Benediktssyni jörðina.

Gjörningurinn fór fram á Einarsstöðum í Kræklingahlíð 3. október 1608 en uppskriftin var gerð á Grenjaðarstað 20. maí 1728.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
2 blöð (161 mm x 103 mm). Bl. 1r og 2v auð.
Kveraskipan
Tvinn.
Umbrot

  • Eindálka. Skrifað er langsum frá bl. 1v til 2r.
  • Leturflötur er ca. 165 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er 30.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Undir uppskriftinni með fljótaskrift: Þetta bréf er með einu heilu hangandi innsigli og öðru löskuðu rétt kóperað eftir sínum original á kálfskinn votta undirskrifaðir er kóperuðu og saman lásu að Grenjaðarstað d. 20. maí 1728.. Undir skrifa Magnús Þorvaldsson og Gísli Magnússon.

Band

Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.

Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, árið 1728.

Ferill

Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftir sendar til Kaupmannahafnar árið 1720 en þessi hefur komið síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 6. apríl 2017.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Vitnisburðarbréf um sölu jarðarinnar Landamóta í Ljósavatnskirkjusókn í Kinn

Lýsigögn