Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Apogr. 5

Vitnisburðarbréf um sölu jarðarinnar Hrafnsstaða í Staðarsókn í Kinn ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1v-2r)
Vitnisburðarbréf um sölu jarðarinnar Hrafnsstaða í Staðarsókn í Kinn
Upphaf

Það gjörum vér eftirskrifaðir menn Jón Brandsson prestur, Guðmundur Stefánsson …

Athugasemd

Brynjólfur Magnússon selur Birni Benediktssyni jörðina.

Gjörningurinn fór fram á Öxarárþingi 1. júlí 1612 en uppskriftin var gerð á Grenjaðarstað 20. maí 1728.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
2 blöð (161 mm x 103 mm). Bl. 1r og 2v auð.
Kveraskipan
Tvinn.
Umbrot

  • Eindálka. Skrifað er langsum frá bl. 1v til 2r.
  • Leturflötur er ca. 140 mm x 134 mm.
  • Línufjöldi er 28.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Undir uppskriftinni með fljótaskrift: Þetta bréf á kálfskinn. Er með þremur heilum hangandi innsiglum og tveimur innsigla reimum. Rétt kóperað eftir sínum original votta undirskrifaðir að Grenjaðarstað d. 20. maí Anno 1728. Undir skrifa Magnús Þorvaldsson og Gísli Magnússon.

Band

Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.

Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, árið 1728.

Ferill

Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftir sendar til Kaupmannahafnar árið 1720 en þessi hefur komið síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 6. apríl 2017.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn