„Þann tíma í veröldu er náliga voru liðnir níutigir vetra …“
„… með föður og syni og helgum anda. Per omnia secula seculorum. AMEN.“
Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með bleki, 1-50.
Sex kver.
Líklega með hendi Jóns Arasonar, árléttiskrift (sjá Karl Ó. Ólafsson 2006).
Fremst í handritinu er mynd af kvendýrlingi sem ríður kynjaskepnu. Um myndina er pennaskreyttur rammi með laufteinungum og fleira skrauti, m.a. tveimur mannamyndum.
Myndir af kynjaskepnum á neðri spássíu á bl. 2r, 8r-v, 12r-13r, 14r,15r-v, 17r, 20r-v. Víða er skýringartexti með myndunum.
Mannamyndir á neðri spássíu bl. 9r, 12v, 13v, 14v (og fugl), 19r, 21r, 22r. Víða er skýringartexti með myndunum.
Teiknaðar hendur á neðri spássíu bl. 3r og 8r.
Annað pennaskraut á bl. 4r, 6r, 7r, 16v, 23r.
Pennaflúraðir upphafsstafir víða, sumir með mannsandlitum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Band frá 19. öld (127 mm x 97 mm x 15 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnleitu marmaramunstri. Skinn á kili og hornum. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1550 (sjá ONPRegistre , bls. 466), en til um 1500 í Katalog II , bls. 481.
Árni Magnússon fékk handritið frá Gísla Jónssyni á Völlum (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. apríl 1992.
ÞS skráði skv. reglum TEIP5 22. september 2009.
GI færði inn grunnupplýsingar17. september 2002.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. ágúst 1890 ( Katalog II 1894:481 (nr. 2512) ).
Yfirfarið í apríl 1992.