Ein hönd.
Sendibréf frá Gísla Konráðssyni.
Með hendi Gísla Konráðssonar og tímasett til 19. aldar í Katalog II , bls. 473, en handritið er komið til Kaupmannahafnar 1850.
Gísli Brynjúlfsson afhenti Árnasafni handritið 1886, en skrifari hafði sent Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab handritið c1849-50 (sjá sendibréf).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. desember 1992.
Tekið eftir Katalog II , bls. 473 (nr. 2491). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 21. apríl 1910. ÞS skráði 25. september 2002.
Birgitte Dall gerði við í ágúst 1981.