Samið 1732 fyrir Jón Árnason biskup. Athugasemd á latínu um pólhæðina fyrir Stað í Grunnavík, samkvæmt útreikningum Ólafs Jónssonar árið 1704, hefur verið bætt við.
Með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík.
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn á árunum 1732-1750. Það var áður hluti af KBAdd 19 d 8vo.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 9. apríl 1992.
GI skráði 8. ágúst 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 471.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.