Skráningarfærsla handrits

AM 254 8vo

Um Íslendingabók ; Skálholt og Kaupmannahöfn

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-312v)
Um Íslendingabók
Athugasemd

Minnisgreinar Árna Magnússonar um Íslendingabók Ara fróða.

Tilvísanir í ýmis fornrit.

1.2 (65r-76v)
Maríu saga
Titill í handriti

Úr Maríu sögunni stóru frá Hrunakirkju

Athugasemd

Kaflar úr Maríu sögu.

Tvö titilblöð, bl. 65 og 73.

Auð bl.: 65v, 70v-72v, 73v.

Efnisorð
1.3 (226r-272v)
Um örnefni
Athugasemd

Athugagreinar um ýmis örnefni á Suður- og Vesturlandi.

Efnisorð
2 (313r-330r)
Þjóðsögur um Sæmund fróða
Titill í handriti

Fabulæ um Sæmund fróða

Notaskrá

Sögurnar eru prentaðar eftir handritinu í Munnmælasögum 17. aldar, bls. 39-45, en ævisaga Sæmundar fróða á bls. cv-cvi.

Athugasemd

Á bl. 313r m.h. Árna Magnússonar: 1701 bað eg mag. Björn um allar þær relationes um Sæmund fróða, er hann heyrt hefði, hversu heimskulegar sem þær væri, og að þær heldur mættu verða dilucide (ef so skyldi segjast) uppteiknaðar, en compendiose. Eg trúi hann sendi mér nokkrar það ár.

Undir öftustu sögunni er nafnið Halldór Þorbergsson.

Ævisaga Sæmundar m.a.h. í bindi III, bl. 20r-24v en bl. 22 og 23r eru auð.

Efnisorð
3 (331r-378v)
Minnisgreinar um Sæmund fróða
Efnisorð
4 (379r-397r)
Munnmæli um Sæmund fróða
Titill í handriti

De Sæmundo froda, Relationes fabulosæ

Notaskrá

Munnmælin eru prentuð eftir þessu handriti í Munnmælasögum 17. aldar, bls. 45-48.

Athugasemd

Fyrirsögn í handriti er á bl. 379r, sem er bl. 29r í III. bindi.

Bl. 379ver autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
388 blöð í þremur bindum (misstór en flest 167 mm x 108 mm). Víða auð blöð og blaðsíður. Fáein bl. eru í kvartóbroti, bundin sér. Þegar handritið var bundið inn voru auð blöð sett í stað þeirra 4to-blaða sem tekin voru úr handritinu og komið fyrir í bindi III. Þessi blöð eru ekki talin með.
Tölusetning blaða

  • Blöð tölusett nýlega með blýanti neðst 1-397 (þar með talið bl. 55bis en hlaupið yfir tölurnar 244-253), einnig þar með talin 4to-blöð sem tekin hafa verið úr handritinu og bundin sér í III. bindi. Þar eru blöð 7, 23, 41, 42, 55bis, 58, 64, 121, 140-144, 151, 189, 209, 217, 236, 273, 312, 336, 345-347, 350-351, 379.
  • Eldri blaðmerking á stöku stað.

Kveraskipan

Upprunalega samsafn af lausum blöðum, seðlum og kverum.

Umbrot

Skrifarar og skrift

Að mestu með hendi Árna Magnússonar, fljótaskrift.

Band

Band frá því í janúar 1988. Handritið er í þremur bindum (I og II: 177 mm x 130 mm x 45 mm. III: 228 null x 193 null x 15 null).

Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi.

Fylgigögn

Athugasemdir á seðlum liggja til grundvallar efnisþættinum á s. 49-362 í AM 411 fol., þ.e. Annotationes Arnæ Magnæi in Aronis Polyhistoris Libellum, cui Titulus Libellus de Rebus Islandorum.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ritunarstaður Skálholt og Kaupmannahöfn. Handritið er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II 1892:466.

Á bl. 203v er hluti af utanáskrift: Magnussen ... og Antiqvitatum Dani... nhavn. Á bl. 332v og 334v er utanáskrift til Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn. Einnig á bl. 342v en á 368v og 393v og 397v er utanáskriftin Skálholt.

Handritið var áður hluti af KBAdd 2 8vo með viðbótum úr KBAdd 1 8vo og KBAdd 65 4to.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 10. febrúar 1988.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði 10.-12. september 2018.

GI færði inn grunnupplýsingar 7. ágúst 2012

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 466.

Viðgerðarsaga
Viðgert og bundið af Mette Jacobsen í janúar 1988. Eldra band fylgir.
Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Finnur Jónsson
Titill: Árni Magnússons Levned og Skrifter
Titill: Munnmælasögur 17. aldar, Íslenzk rit síðari alda
Ritstjóri / Útgefandi: Bjarni Einarsson
Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Munnmælasögur 17. aldar, Íslenzk rit síðari alda
Umfang: 6
Höfundur: Eiríkur Þormóðsson, Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: Oddaannálar og Oddverjaannáll,
Umfang: 59
Höfundur: Louis-Jensen, Jonna, Stefán Karlsson
Titill: En marginal i Codex Regius af Den ældre Edda,
Umfang: s. 80-82
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: 14
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Afmælisrit Jóns Helgasonar 30. júní 1969, Fróðleiksgreinar frá tólftu öld
Umfang: s. 328-349
Lýsigögn
×

Lýsigögn