„Sigilla Islandica | Clariorum virorum“
Teikningar af íslenskum innsiglum með lýsingum og upplýsingum, t.d. innsigli Íslands 1593 (bl. 253).
Káputitill frá Árna. Mörg blöð og blaðsíður auð.
Band frá mars 1980.
Á fremra saurblaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „Sigilla Islandica. Claviorum virorum.“
Skrifað af Árna Magnússyni og skrifara/skrifurum hans og tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II , bls. 452.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. júní 1980.
Tekið eftir Katalog II , bls. 452-53 (nr. 2429-31). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1890. ÞS skráði 30. maí 2002.
Viðgert og bundið í tvö bindi á verkstæði Birgitte Dall í mars 1980. Eldra band fylgir.