„Júpiter hvörn þeir kölluðu föður …“
Texti á blaði 1 hefur skerts lítillega þar sem morknað hefur úr jöðrum blaðsins.
„Kónganöfn“
„Kóngur er nefndur Halfdan …“
Brot af Skáldskaparmálum, Háttatali, og Skáldu sem samsvarar efnisatriði 6 í AM 166 a 8vo sem inniheldur útdrátt af annarri málfræðiritgerðinni eftir Codex Upsalensis og þriðju málfræðiritgerðina eftir AM 748 4to.
„Háttalykill Lofts Guttormssonar“
Byrjar óheill í 6. erindi. Eftirfarandi eru erindi 7-75.
„Fyrst úr gýgjar gusti …“
Lykillinn er óheill og það vantar í hann erindi 17-33. Sama efni og er í AM 166 a 8vo (efnisatriði 9).
„Þriðja háttatalskvæði, stúfur“
„Flesta gleður falds rist … “
Sama efni og í AM 166 a 8vo (efnisatriði 10). 105 erindi.
„Þessar eftirfylgjandi vísur hefur kveðið Þórður Magnússon“
„Yndis nær á Grund …“
„Í þessum vísum eru settar flestar kvennakenningar.“
„Blíð er mær við móðir …“
„Ljúflingsljóð“
„Sofi sonur minn …“
Einungis fyrstu línur ljóðsins.
„Eyvindur skáldaspillir orti kvæði eitt um fall Hákonar kóngs og … það eru kölluð Hákonarmál og eru þeirra upphaf:“
„Göndul og kögul sendi …“
„Vísur Ketils hængs“
„Hvað er þars …“
2 vísur.
„Svo [völv…..] um Örvar-Odd.“
„Hafursgrið“
„Hávamál hin gömlu“
„Gáttir allar, áður gangi fram …“
„Aldarháttur Hallgríms Péturssonar“
„Endur og tíðum, var tíska hjá líðum …“
18 erindi. Endar óheill. Fyrir framan Aldarháttinn eru uppskriftir á úreltum íslenskum orðum. Á blöðum 58r-60v eru nokkur vers og pennaprufur.
„Funa brands, fróns lind …“
Huganlega efnisleg viðbót við Háttalykil (sjá blöð 31v-34r).
Síðari tíma blaðmerking 1-65.
Ellefu kver.
Spássíugreinar eru víða eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík.
Band (170 mm x 125 mm x 25 mm) er frá 1964.
Strigi er á kili og hornum, spjöld eru klædd brúnyrjóttum pappír. Saumað á móttök.
Blandið er í brúnni strigaklæddri öskju
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar ( Katalog II 2377:428-429 ).
Árni Magnússon fékk handritið hjá Jóni Hákonarsyni á Vatnshorni 1702 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. október 1977.
VH skráði handritið 20-25. nóvember 2009; lagfærði í nóvember 2010, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 15. mars 1890 í Katalog II> , bls. 428 (nr. 2377).