Lokin á XIII. rímu. XII. og XIII. ríma skv. AM 477 fol.
„Bjarka rímur“
Fyrstu 5 línurnar. Átta rímur skv. AM 477 fol en vantar aftan af þeim.
„Rímur af Niteda hinni frægu: ortar af Jóni Gottskálkssyni“
Átján rímur.
„Rímur, sem séra Einar Guðmundsson hefur ort“
Enda óheilar í VI. rímu.
Brot, sem geymir lokin á eftirmála í lausu máli. Í AM 477 fol er þessi titill: Evu rímur síra Jóns Bjarnasonar.
„Rímur af Konráði Keisarasyni“
Upphafið á I. rímu. Átta rímur skv. AM 477 fol.
„Rímur af barndóminum Kristí, ortar af síra Guðmundi Ellendssyni í Felli í Skagafirði: annó 1656 “
Upphafið á I. rímu. Tíu rímur skv. AM 477 fol. Öðru nafni Jesú rímur.
Blaðsíðumerkt 1-434.
Óheilt og á ýmsan hátt skaddað. Á neðri spássíum gerir Jón Sigurðsson stundum grein fyrir slíku.
Af lýsingunni á handritinu í AM 477 fol má sjá að það var fyllra þá en nú.
Með hendi Jóns Finnssonar.
Skreyttir upphafsstafir.
Band frá því í október 1990.
Seðill Árna Magnússonar: Þessa bók hefi ég 1703 fengið af Lofti Jónssyni í Flatey. Er með hendi Jóns Finnssonar.
Á fjórum samhangandi innskotsblöðum er efnisyfirlit, að hluta með hendi Árna Magnússonar, sem svarar til lýsingarinnar í AM 477 fol. Efnisyfirlitið var gert áður en handritið komst í eigu Árna.
Efnisyfirlit með hendi Jóns Sigurðssonar er á innskotsblaði.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til fyrri helmings 17. aldar í Katalog II 1892:411.
Sjá seðil Árna Magnússonar.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 10. desember 1990.
GI skráði 21. júní 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 411-412.