Eitt blað vantar framan af Hjálmþérs sögu og hefur Árni Magnússon skrifað það upp.
Aðeins upphaf Partalópa sögu.
„Sagan af Hjálmþér og Ölvir“
„Þessi saga byrjast af einum ágætum konungi ...“
„... er Herrauður hét. Hann kunni allar listir“
Aðeins upphaf sögunnar sem Árni Magnússonskrifaði.
„... listir þær sem þá voru tíðar ...“
„... eð setti og samdi sá sem vel kunni og vel vildi.“
Upphaf sögunnar vantar.
„Partalópa saga byrjast hér“
„Svo er sagt að fyrir Miklagarði ...“
Aðeins upphaf sögunnar (12 línur) og útstrikað.
Pappír
Seinni tíma blaðmerking 258-282.
Ein hönd (bl. 1 viðbót með annarri hendi).
Skrifari óþekktur.
Bundið c. 1890 (166 mm x 125 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd brúnum pappír. Horn og kjölur klædd fínofnum líndúk. Saumað á móttök.
Í öskju með AM 109 a I og II.
Handritið var skrifað á Íslandi. það er tímasett til 17. aldar í Katalog II 1892:396.
Enn fremur hafa eftirfarandi sögur einnig verið í AM 109 a 8vo: annað eintak af Hrólfs sögu kraka, Ketils sögu hængs, Gríms sögu loðinkinna og Örvar-Odds sögu. Einnig Þorsteins saga Víkingssonar, Göngu-Hrólfs saga, Sturlaugs saga starfsama, og Þorsteins þáttur bæjarmagns (sbr. AM 477 fol.).
Afhendingu frestað vegna rannsókna í Kaupmannahöfn. Í láni þar frá 18. apríl 1997. Skilað 1. ágúst 2006.