„Nú upphefst hér Áns saga“
„Þann tíma er fylkiskóngar voru í Noregi …“
„… og lýkur hér við sögu Áns bogsveigis.“
„… kemur eitt mikið dýr …“
„… og lúkum vær þar þessari sögu.“
Upphaf sögunnar útstrikað og ólæsilegt, 14 línur alls.
„Saga af Hálfdani Eysteinssyni“
„Þrándur hefur kóngur heitið …“
„… og lúkum vær þar þessari frásögu.“
„Inntak nokkuð úr sögu Ketils hængs“
„Hallbjörn hét maður …“
„… og lýkur hér frá honum að segja.“
Á undan sögunni fer niðurlag annarrar útstrikað, 4 línur.
„Sagan af Örvar Oddi kemur nú á eftir sonarsyni Ketils“
„Svo er sagt af Grími loðinkinna …“
„… hér gengur upp Örvar-Odds saga og er mikil saga.“
Gríms saga loðinkinna er hér inngangur að Örvar-Odds sögu.
„Eiginleg saga Odds“
„Grímur hét maður …“
„… og lýkur þar nú sögu Örvar-Odds eftir því sem fróðir menn hafa sagt.“
„Finis þessari sögu. Örvar-Oddur ei með eigin hendi.“
Pappír.
Seinni tíma blaðmerking 1-142
Hver saga um sig er að auki blaðsíðumerkt á neðri spássíu.
Eindálka.
Griporð víðast hvar.
Ein hönd.
Skrifari óþekktur.
Bundið ca 1890 (166 mm x 125 mm x 50 mm). Pappaspjöld klædd brúnum pappír. Horn og kjölur klædd fínofnum líndúk. Saumað á móttök.
Í öskju með AM 109 a II og III.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog II 1892:396
Enn fremur hafa eftirfarandi sögur einnig verið í AM 109 a 8vo: annað eintak af Hrólfs sögu kraka, Ketils sögu hængs, Gríms sögu loðinkinna og Örvar-Odds sögu. Einnig Þorsteins saga Víkingssonar, Göngu-Hrólfs saga, Sturlaugs saga starfsama, og Þorsteins þáttur bæjarmagns (sbr. AM 477 fol.).
Afhendingu frestað vegna rannsókna í Kaupmannahöfn. Í láni þar frá 18. apríl 1997. Skilað 1. ágúst 2006.