Á bl. 74v er titillinn Noa þulur. Ellefu rímur, með tveimur viðbótum. Bl. 6-7, 19v, 88v-90 eru auð.
„Rijmur vt af Konga Bokunum “
Vantar aftan af og innan úr.
Rímurnar eru 25 alls.
Ein hönd.
Nótur á blaði úr latnesku helgisiðahandriti er notað var sem kápa utan um handritið.
Á bl. 90v er nafn eiganda.
Band trúlega frá c1960-1970.
Blað úr latnesku helgisiðahandriti með nótum var áður utan um handritið, fóðrað með hluta úr sendibréfi.
Fastur seðill (tvinn) (156 mm x 103 mm) með hendi Árna Magnússonar og skrifara hans: „Þessi rímnabók heyrir til Sigurðar Sigurðssonar á Firði og á honum aftur að skilast. Er hönd síra Jóns Magnússonar í Laufási. Þessi gamla rímnabók heyrir mér, undirskrifaður til. [testor?] Firði 1707 dags. 17. september, Sigurður Sigurðsson. “
Eiginhandarrit sr. Jóns Magnússonar í Laufási, skrifað um 1650 samkvæmt Katalog II , bls. 392, en Rímur af Bileam eru sagðar ortar 1657-1658 (bl. 136v).
Árni Magnússon fékk handritið að láni hjá Sigurði Sigurðssyni í Firði 1707 (sjá seðil). Árið 1685 átti Sigurður Sigurðsson í Haga á Barðaströnd það (bl. 90v), en séra Jón Magnússon um 1650 (bl. 202v) og um 1657 (saurbl. aftast, hluti úr sendibréfi á dönsku, þar eru ennfremur fleiri eigendanöfn). Fleiri eigendanöfn koma fyrir á bl. 14bis.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. mars 1984.
Tekið eftir Katalog II , bls. 392 (nr. 2307). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. janúar 1890. ÞS skráði 1. febrúar 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn á árunum 1960-1970.