„MEMORIALE BIBLI|CUM: þad er | Minneſs wers yfer alla Capitula Sier |huørrar Bökar Bibliunnar, 1695“
Bl. 26v, 28v eru auð.
Stór skreyttur upphafsstafur á eldra bandi.
Nótur á blaði úr eldra bandi.
Band frá 1980.
Blað úr latnesku helgisiðahandriti með nótum var áður utan um handritið, fóðrað með blöðum sem á eru setningar á latínu.
Fastur seðill (138 mm x 88 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Jóns Einarssonar vice-Rectoris Holensis. Fengið af monsieur Jóni Steinssyni 1715.“
Handritið var skrifað árið 1711.
Árni Magnússon fékk handritið hjá Jóni Steinssyni 1715, en Jón Einarsson skólameistari Hólaskóla hafði átt það.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. júní 1983.
Tekið eftir Katalog II , bls. 391 (nr. 2305). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 20. ágúst 1913. ÞS skráði 31. janúar 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1980. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.