„Hinn fjórði kapituli“
„Næst eftir þetta …“
Titillinn Dimna er fenginn úr skrá Jóns Ólafssonar úr Grunnavík í AM 477 fol.
Blaðmerkt er með blýanti 1-154.
Tuttugu kver.
Blöð eru skítug og lúin og sums staðar sést texti í gegn.
Á stöku stað eru blekfylltir upphafsstafir.
Band frá júní 1988 (173 mm x 137 mm x 38 mm). Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi á hornum og kili. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Eldri kápa er úr bókfelli. Á henni kemur fyrir ártalið 1672 og verslunarreikningar.
Fastur seðill (80 mm x 77 mm) með hendi Árna Magnússonar. „Sr. Gísla Hannessonar á Snæfjöllum (til láns eða eignar leggur hann ekki til) komið til mín 1711 í júlí.“
Handritið var sennilega skrifað á Íslandi og er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 388.
Árni Magnússon fékk handritið til láns eða eignar hjá sr. Gísla Hannessyni á Snæfjöllum í júlí 1711.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1988.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í júní 1988. Eldra band fylgir ásamt enn eldri skinnkápu og blöðum úr henni.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.