Varðandi gjöld eða skatta af jarðeignum í Vestur-Barðastrandarsýslu. Frumrit sem virðist enda óheilt.
Átta verslunarbréf frá 1687-1692, flest skrifuð af Ara Jónssyni til Torfa Jónssonar í Flatey.
Eftirfarandi er varðveitt í frumriti: Reikningsskapur uppá allar þær skuldir ... sem aðrir menn eru skyldugir mér Eggert Hannessyni ... annó lxx (þ.e. 1570), Kóngskúgildi og jarðir með því umboði, sem Árni Gíslason hefur haft, en Eggert Hannesson meðtók 1570 (94r), Reikningsskapur uppá allar þær skuldir fornar og nýjar, sem aðrir menn eiga að gjalda Eggert Hannessyni í Barðastrandasýslu (sic) í þetta ár annó dómini M.d.lxx og ett ár.
Frá 1604-1607. Kveðnir upp í Barðastrandarsýslu í tíð Björns Magnússonar. Á bl. 141r eru spakmæli og orðskviðir.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki með skálínu // Ekkert mótmerki ( 1+8 , 4-5 , 9 , 10+15 , 12-13 , 16 , 17 , 18+23 , 20-21 , 24 , 25 , 26+31 , 28-29 , 32 , 34+39 , 35 , 38 , 41 , 42+47 , 44-45 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Lítið skjaldarmerki (Bastelstab?) // Ekkert mótmerki ( 62 , 63+68 , 69-71 , 72+75 , 76 , 78+85 , 80-81 , 86 , 87+92 , 93 , 98+101 , 99 , 102 , 103+108 , 129 , 132-133 , 136-137 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: sth // Ekkert mótmerki ( 104-105 , 109 , 112-113 , 118+139 , 128-129 ).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Lítið skjaldarmerki með fjórlaufi // Ekkert mótmerki ( 140 ).
Margar síður og blöð óskrifuð.
Ýmsar hendur.
Band frá 1968.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til sextándu og sautjándu aldar í Katalog II 1892:373.
Á kápu utan um fjórða efnisþátt stendur: Er fundið í bréfarusli í Bæ á Rauðasandi 1727.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 14. maí 1978.
ÞÓS skráði 15. júlí 2020.GI skráði 19. júní 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 373-374.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.