Er einnig efnisyfirlit yfir kvæðasafn (nr. 6-61 [66]) sem ekki er lengur í handritinu.
„Öngvum styggð né ólund sýn“
Á spássíu stendur: Erindi úr Hítardalskveri annó 1677. Á bl. 5, sem upphaflega var autt, eru nú athugasemdir um tímatal og stjörnufræði.
„Tylftir í kringum Ísland“
Er ekki með í efnisyfirliti.
Er ekki með í efnisyfirliti.
„skrifuð úr kvöri Skafta Sigurðssonar fyrir sunnan og vestan, skrifuð á Helgafelli annó 1664“
„skrifaðir eftir kveri síra Illuga annó 1664“
„Fyrir Maríu minni“
Framan við eru lokin á sams konar vísu til Krists.
M.a.: Orðatiltektir úr Njálu, ætt Svalbarðs-Jóns, latnesk klausa úr sögu Karla-Magnúsar og Áratal um Íslands bygging.
„Nokkrar spurningar með úrlausn“
„skrifaðar 1677“
Siðferðilegt efni og heilræði, gátur og vísur, fróðleikur um stjörnufræði og historía um sjö vísu meistara myrkvaræðu.
„Ein fögur og nytsamleg undirvísan og áminning hvörninn kristinn maður skal réttilega og skikkanlega iðka þann h. Davíðs saltara“
„Um svall og drykkjuskap“
Á síðustu hálfu síðunni er fróðleikur um persónuleika Krists.
„Kerlingarrím“
„skrifaðar Helgastöðum annó 1662“
58 erindi. Skrifari hefur fyrst skrifað ártalið 1602. Það er leiðrétt í 1612 og síðast í 1662.
Skorðið hefur verið neðan af blöðum 16 og 88.
II. Ýmsar hendur.
Band frá því í febrúar 1967.
Handritið var skrifað á Íslandi og að stórum hluta árið 1664. Aðrir hlutar þess eru tímasettir til 17. aldar í Katalog II 1892:371.
Á bl. 54v eru upplýsingar um skrifara: Ionas Gudmundi est legitimus libelli huius possessor exarati Helgafellj Anno salutis 1664 et confecti Anno 1665 die 10. januarij. Jón Guðmundsson hefur einnig skrifað nafnið sitt á bl. 107v og 110v.
Á bl. 53v eru upplýsingar um eiganda: Þetta kver á Elín Jónsdóttir með réttu. Skrifað að Borg við Borgarfjörð MSD.
Á seðli kemur fram að við lok 18. aldar, þegar ólíkum handritshlutum var raðað saman, þá hafi verið litið á handritið sem: Ripsraps af alle slags defecter.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 14. maí 1978.
GI skráði 19. júní 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 371-373.