Geymir fróðleik um kirkjueignir í Árnessýslu. Sumt er í frumskjölum annað í eftirritum. Hér er og skrá yfir kirkjusóknir og greinargerð um jarðeignir þeirra o.fl. Bl. 75-80 eru skjöl varðandi hjúskaparloforð sem Ólafur, sonur Jóns Sigurðssonar í Búðardal, gaf í Möðruvallakirkju í Hörgárdal árið 1580. Þar fyrir aftan eru gjafabréf og máldagar Viðeyjarklausturs. Á bl. 85r er efnisþátturinn: að þýða bókareið, en hann virðist enda ófullgerður.
Ýmsar hendur.
Band frá því í nóvember 1974.
Á bl. 56v eru tvö vaxinnsigli.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1600 í Katalog II 1892:370.
Á bl. 84 stendur: Stefáni Gunnarssyni í hönd. Nýjar kópíur af Viðeyjarmáldaga 1595. Undirskrift Odds biskups Einarssonar kemur víða fyrir í handritinu.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 2. október 1975.
GI skráði 18. júní 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 370-371.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.