„Registur yfir erfðatal Íslendinga“
Einungis upphaf að efnisyfirliti Erfðatals Íslendinga. Óheilt. Vantar framan af handritinu og innan úr.
Fremst eru tvær línur með reikningsniðurstöðum: Reikningskapur.
Einungis minnispunktar.
Arfur Lopts Ormssonar til sonar síns, Stefáns (1474). Vantar innan úr.
Skjöl frá prestastefnu í Hólabiskupsdæmi 1573-1575. Vantar aftan af.
Framsetning ættleiðingar sr. Ólafs Kolbeinssonar á börnum sínum fjórum og þær lagaflækjur sem af hlutust.
Útdrættir úr lögum. Annálsgreinar. Hjúskaparsamningur.
Band frá því í ágúst 1964.
Bókfell úr kirkjulegu latnesku handriti hefur verið utan um AM 62 a-c 8vo.
Handritið er tímasett um 1600 í Katalog II , bls. 367.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. desember 1975.
Tekið eftir Katalog II , bls. 367-68 (nr. 2263). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 4. febrúar 1910. ÞS skráði 18. janúar 2002.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1964. Eldra band fylgir ekki.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.