Á undan fer trúarjátningin.
Mynd af Kristi á krossinum með Maríu og Jóhannes fyrir neðan á bl. 1v.
Ásamt fleiri kirkjulegum ákvörðunum.
Ein dálka.
Bl. 53v (að hluta), 54 og 55r eru með öðrum höndum.
Mynd af Kristi á krossinum með Maríu og Jóhannes fyrir neðan á bl. 1v.
Rauðir og grænir upphafsstafir.
Rauðar fyrirsagnir.
Band frá mars 1976.
Bl. 2r(3)-53v(106)15 eru tímasett til loka 14. aldar, bl. 53v(106)16-26 og 56r(111) til um 1400 og bl. 54r(107)-55r(109)3 til 15. aldar (sjá ONPRegistre , bls. 465), en í Katalog II , bls. 356, er allt handritið tímasett til síðari helmings 14. aldar.
Árni Magnússon fékk handritið til eignar frá Pétri Ásmundssyni á Ketilsstöðum á Völlum í Fljótsdalshéraði árið 1708 (sjá seðil fremst). Faðir hans, Ásmundur Jónsson, hafði átt það en á undan honum séra Einar Þorvarðarson, en bókina galt Einar Styrbjörnsson honum í tíund af Bessastöðum árið 1631 (bl. 55v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. maí 1977.
Tekið eftir Katalog II , bls. 356-57 (nr. 2246). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1909. ÞS skráði 14. janúar 2002. BS lagfærði upplýsingar 18. nóvember 2022.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn hjá Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.