Þrjár hendur:
I. bl. 1-82 brotaskrift.
II. bl. 83r-94v hálfléttiskrift.
III. bl. 94v-117v hálfléttiskrift. Þessi hönd hefur einnig skrifað víða á spássíur og bætt við textann á bl. 1-82.
Upphafsstafur skreyttur.
Leifar af upphafsstöfum og fyrirsögnum víða.
Band frá maí 1973.
Bl. 1-82 voru skrifuð um 1400 en viðbæturnar, bl. 83-117, um 1500 (sjá ONPRegistre , bls. 465, en í Katalog II , bls. 353, er handritið tímasett til um 1500).
Brynjólfur Þórðarson gaf Árna Magnússyni handritið í júní 1705 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. maí 1981.
Tekið eftir Katalog II , bls. 353 (nr. 2239). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 14. október 1889. ÞS skráði 25. september 2002.
Viðgert og bundið á verkstæði Birgitte Dall í maí 1973. Eldra band fylgdi ekki.