Skráningarfærsla handrits
AM 40 8vo
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Jónsbók Lagaformálar Réttarbætur; Ísland, 1550-1600
Innihald
Jónsbók
Bænin í lok bókarinnar endar á lausavísu (4 vísuorð).
Bl. 1 hefur upprunalega verið autt en nú er teikning á baksíðu þess.
Lagaformálar
Réttarbætur
Réttarbætur konunganna Magnúsar, Eiríks og Hákonar.
Jónsbók
Sjá framar.
Lýsing á handriti
- Skrifað á uppskafning. Víða sjást merki um upprunalegan texta.
- Strimill hefur verið rifinn af bl. 138, langsum eftir ytri spássíu.
- Eitt blað úr handritinu notað sem saurblað og límt innan á bakhlið bands.
Teikning af þrímöstruðu skipi á bl. 1v bætt við síðar. Undir henni er skreyttur bekkur.
Upphafsstafir í ýmsum litum. Sumir skreyttir.
Fyrirsagnir rauðar.
Á eftir bl. 12 hefur skinnstrimli verið bætt við.
Band frá júlí 1975.
Efnisyfirlit Jóns Sigurðssonar innfest í kápu.
Uppruni og ferill
Handritið er tímasett til síðari helmings 16. aldar í Katalog II, bls. 352.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. júní 1976.
Aðrar upplýsingar
Tekið eftir Katalog II, bls. 352 (nr. 2237). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 11. október 1889. ÞS skráði 7. janúar 2002.
Viðgert og bundið í tvö bindi af Birgitte Dall í júlí 1975. Tvö eldri bönd fylgja í öskju með handritinu.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Íslenzkt fornbréfasafn I. 834-1264 | |||
Guðvarður Már Gunnlaugsson | „Brot íslenskra miðaldahandrita“, Handritasyrpa : rit til heiðurs Sigurgeiri Steingrímssyni sjötugum 2. október 2013, | 2014; 88: s. 121-140 | |
Halldór Hermannsson | Illuminated manuscripts of the Jónsbók, Islandica | 1940; 28 |