Ein hönd.
Band frá árunum 1984-1985. Þrír hlutar (a-c) í 11 bindum: AM 979 a I-III; AM 979 a IV; AM 979 b I-III; AM 979 cI-III. Fólíó-blöð í AM 979 a IV eru sérbundin, en sá hluti var áður laus í bandaspjöldum.
Eiginhandarrit Jóns Ólafssonar úr Grunnavík frá c1764-1765.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við AM 979 a I-III 14. mars 1986; AM 979 a IV kom 21. febrúar 1986; AM 979 b kom 28. febrúar 1986; AM 979 c kom 11. febrúar 1986.
Tekið eftir Katalog II , bls. 284 (nr. 2111). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 13. nóvember 2001.
Birgitte Dall gerði við og batt á árunum 1984 og 1985. Eldri bandaspjöld fylgja með handritinu.