Skráningarfærsla handrits

AM 970 VII 4to

Útdrættir og sýnishorn úr ýmsum verkum ; Ísland

Athugasemd
Yfirtitill: Fornrit

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-v)
Þóris þáttur hasts og Bárðar birtu
Titill í handriti

Söguþáttur af Þóri hast og Bárði birtu

Upphaf

Þórir kom utan með Rolleifi í þann tíð …

Skrifaraklausa

Sagan sem eg sá var skrifuð 1827.

Athugasemd

Aðeins ágrip af sögunni.

Efnisorð
2 (1v)
Þorsteins saga Geirnefjufóstra
Titill í handriti

Sagan af Þorsteini Geirnefjufóstra (24 capit) (Sýnishorn)

Upphaf

Einn af víkingunum er Haddgrímur hét …

Skrifaraklausa

Sagan sem eg sá er skrifuð 1828, víða rangt, einkum vísurnar. Hún kemur við mörg lönd: Noreg, Svíaríki, Garðaríki, Suðureyjar, Ísland og Grænland.

Athugasemd

Aðeins ágrip af sögunni.

3 (2r)
Þorsteins þáttur tjaldstæðings
Titill í handriti

Söguþáttur af Þorsteini tjaldstæðing (sýnishorn)

Upphaf

Eitt sinn er Ásgrímur fór í víking …

Skrifaraklausa

Þátturinn er skrifaður 1828, víða rangt.

Athugasemd

Aðeins ágrip af sögunni.

Undir stendur: Eigandi þessara 3ggja sagna er Pétur Runólfsson, bóndi á Klúku.

4 (2r)
Hrana saga hrings
Titill í handriti

Sagan af Hrana Egilssyni Hring (sýnishorn)

Upphaf

(Upphafið) Bárður hét maður …

Skrifaraklausa

Sagan er nýlega skrifuð en þó máð og ill aflestrar (málið víða unglegt). Eigandi er Jón Sigurðsson bóndi í Njarðvík.

Athugasemd

Aðeins ágrip af sögunni.

5 (2v)
Vísdómsbók eða Pansophia
Titill í handriti

Vísdómsbók samsett af prófasti sra Páli Björnssyni anno 1574. (Sýnishorn af innihaldi og registur bókarinnar)

Upphaf

1. kapit: Um hádýrðina …

Skrifaraklausa

Bókin er 38 kapit. víða rotin en má þó lesa (eign Jóns bónda Sigurðssonar í Njarðvík)

Athugasemd

Ártalið í fyrirsögn er rangt, ritið var sett saman 1674.

Einungis registur, 16 kaflar.

Efnisorð
6 (2v)
Lækningar
Athugasemd

Greint frá bók í eigu Jóns bónda Sigurðssonar í Njarðvík: Lækningar Jóns Guðmundssonar lærða á 5 örkum í blöðum, víðast læsileg.

Efnisorð
7 (2v-3r)
Hugrás
Athugasemd

Upplýsingar um handrit sem inniheldur Hugrás: Bók skrifuð móti okri, ýmsum galdragreinum og Fjandafælu Jóns lærða af séra Guðmundi Einarssyni presti að Staðarstað og prófasti í Þórsnesþingi anno 1640 (eign Sigurðar bónda Jónssonar í Njarðvík.

Efnisorð
8 (3r-v)
Hallmundarkviða
Titill í handriti

Hallmundarkviða með útskýring (Sýnishorn)

Upphaf

1ta erindi: Hrynur af heiða fenri …

Skrifaraklausa

(Eign Jóns bónda Sigurðssonar í Njarðvík)

Athugasemd

Aðeins 2 erindi ásamt ágripi af sögunni.

Efnisorð
9 (3v-4r)
Gulaþingslög
Titill í handriti

Gulaþingslög

Upphaf

Á fremsta blaðinu stendur skrifað með rauðu bleki …

Skrifaraklausa

Bókina á Sigurður prestur Gunnarsson á Desjarmýri

Athugasemd

Efnið er lýsing á handriti sem inniheldur Gulaþingslög.

Efnisorð
10 (4r)
Fornyrðabók
Titill í handriti

Fornyrðabók

Athugasemd

Upplýsingar um að Sigurður prestur Gunnarsson á Desjarmýri eigi fornyrðabók, líklega eftir Pál Vídalín.

Efnisorð
11 (4r)
Alfræði
Titill í handriti

Fróðleikskver

Athugasemd

Upplýsingar um efni fróðleikskvers í eigu Bjarna Jónssonar bónda í Breiðuvík.

Efnisorð
12 (5r-6v)
Þorragarður
Titill í handriti

Staðalýsing

Upphaf

Innan við bæinn í Njarðvík …

13 (7r-8r)
Njarðvík
Titill í handriti

Staðalýsing (Alþýðleg fornfræði)

Upphaf

Það sem menn vita um ábúendur Njarðvíkur …

14 (8r-v)
Kögurgrímur
Titill í handriti

Frá Kögurgrími

Upphaf

Maður hét Þorvarður sonur Björns skafins …

Efnisorð
15 (8v-9v)
Naddi
Titill í handriti

Frá Nadda

Upphaf

Svo er sagt að í tíð Björns skafins í Njarðvík …

Efnisorð
16 (9v-10r)
Goðaborg á Svartafelli
Titill í handriti

Goðaborg á Svartafelli

Upphaf

Það er í munnmælum að goðahaf hafi staðið …

Efnisorð
17 (10r-v)
Álfaborg
Titill í handriti

Álfaborg

Upphaf

Klettur einn mikill stendur á sléttum móum …

Skrifaraklausa

Desjarmýri 20ta des. 1847. S.Gunnarsson.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
10 blöð (210 mm x 170 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerkt nýlega, 1-10.

Umbrot

Eindálka.

Skrifarar og skrift

Sigurður Gunnarsson á Desjarmýri, sprettskrift.

Band

Bundið í pappaspjöld í október 1983. Líndúkur á kili. Saumað á móttök. AM 970 I-VII 4to er varðveitt í öskju. Gömul spjaldmappa fylgir.

Innsigli

Leifar af rauðu innsigli framan á sendibréfi aftast í handritinu.

Fylgigögn

Aftast er sendibréf til hinnar konunglegu fornleifanefndar í Kaupmannahöfn frá Sigurði Gunnarssyni á Desjarmýri, dags. 28. des. 1847.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi 1847.. Það er tímasett til 19. aldar í Katalog II 1892:282.

Ferill

AM 970 I-VII 4to var áður í eigu Det kongelige nordiske Oldskriftselskab. Það kom kom á Árnasafn í Kaupmannahöfn 1886 fyrir tilstuðlan Gísla Brynjúlfssonar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 21. maí 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði 20.-23. nóvember 2018.

GI færði inn grunnupplýsingar11. júní 2012

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1892. (sjá Katalog II 1892:282 (nr. 2102)).

Viðgerðarsaga
Viðgert í október 1983.
Myndir af handritinu
  • Filma kom í apríl 1979 askja 229.
  • Myndir gerðar í filmuvél, frágangur í nóvember 1989
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Titill: Skáldskaparmál, (Ó)Traustar heimildir : um söfnun og útgáfu þjóðkvæða
Umfang: 4
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Yelena Sesselja Helgadóttir
Titill: Góssið hans Árna, Alþýðleg fornfræði og Jón Sigurðsson forseti
Umfang: s. 81-95

Lýsigögn