„Drottinn dýrðar skær / drottinn Guð minn kær …“
„Heyrðu himna smiður …“
„Um þann mikla vetur 1753 og 1754 var þetta kveðið af hr. Sveini lögmanni“
„Vindaljónið voru láði / voðatjónið hafði í ráði …“
„Langviðrin líða þó liggi þungt á …“
Vantar aftan af.
Blaðmerkt nýlega með blýanti.
Seðill fylgir með greinargerð fyrir kveraskiptingu.
Eindálka.
Óheilt. Vantar blöð aftan af og innanúr.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Bundið í pappaspjöld í október 1983. Líndúkur á kili. Saumað á móttök. AM 970 I-VII 4to er varðveitt í öskju. Gömul spjaldmappa fylgir.
Rautt innsigli framan á sendibréfi fremst.
Sendibréf frá sr. Jörgen Kröyer til hinnar konunglegu fornleifanefndar, dags. Hlíðarhaga 3. október 1849. Bréfritari telur upp þau rit sem hann sendir félaginu. Ekki er ljóst hvar þau eru niðurkomin utan "Um presta í Hólabiskupsdæmi" sem er í AM 970 4to II.
Handritið var skrifað á Íslandi, hugsanlega á seinni hluta 18. aldar. Það er tímasett til 19. aldar í Katalog II 1892:282.
AM 970 I-VII 4to var áður í eigu Det kongelige nordiske Oldskriftselskab. Það kom á Árnasafn í Kaupmannahöfn 1886 fyrir tilstuðlan Gísla Brynjúlfssonar.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 21. maí 1987.
ÞS skráði 23. nóvember 2018
GI færði inn grunnupplýsingar 11. júní 2012
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1892. (sjá Katalog II 1892:282 (nr. 2102)).