Skráningarfærsla handrits

AM 960 XVIII 4to

Lýsing á kvæðabók ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-12v)
Lýsing á kvæðabók
Titill í handriti

Margbreytin en þó skemmtileg kvæðabók handa kveðandi fólki að skemmta sér í […] Samantínd og skrifuð á Þingvöllum af einsýnum karli á áttræðis aldri Ólafi Jónssyni þá datum var 1796

Athugasemd

Auk titilsíðu er efnisyfirlit kvæðabókarinnar skrifað upp.

Fremst (1r) hefur safnmarkið JS 260 4to verið skrifað og mun vera handritið sem lýst er hér.

Efnisorð
2 (13r-14r)
Nafnaskrá
Athugasemd

Listi yfir hluttektarmenn hinnar íslensku deildar Hins konunglega norræna fornfræðafélags. Í Norðlendingafjórðungi

Bl. 14v autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
14 blöð (205 mm x 165 mm). Bl. 14v autt.
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerkt með penna efst í hægra horni 1-24 og 1-3, aftasta blaðið ótölusett.

Handritið hefur síðar verið blaðmerkt með blýanti neðst fyrir miðju, 1-14.

Skrifarar og skrift

Með hendi Magnúsar Grímssonar, snarhönd.

Band

Band í hefti frá því í júlí 1984. Hefti merkt 18a. Sendibréfið er í sérstöku hefti merkt 18b.

Fylgigögn

Sendibréf frá Magnúsi Grímssyni, stílað á Hið konunglega norræna fornfræðafélag í Kaupmannahöfn og dagsett í Reykjavíkurskóla 3ja dag marsm. 1848.

Minnist á kvæðabókarlýsinguna og hluttektarmennina.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi 1848.

Ferill

Handritin AM 960 I-XXIII 4to komu í Árnasafn í Kaupmannahöfn frá Det kongelige nordiske Oldskriftselskab (Hinu konunglega norræna fornfræðafélagi) 1883.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 5. júní 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði 20. apríl 2020.

GI færði inn grunnupplýsingar6. júní 2012

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1892. (sjá Katalog II 1892:278 (nr. 2092)).

Viðgerðarsaga
Viðgert í júlí 1984. Gamlar umbúðir fylgja.
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Yelena Sesselja Helgadóttir
Titill: Góssið hans Árna, Alþýðleg fornfræði og Jón Sigurðsson forseti
Umfang: s. 81-95
Lýsigögn
×

Lýsigögn